Árlegur fundur Norrænu ráðherranefndarinnar um fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt verður haldinn á Hótel Selfossi  25.-27. júní. Meðal annars verður fjallað um deilumál sem eru uppi um síld- og makrílveiðar.

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra stýrir fundinum, þar sem Ísland fer þetta árið með formennsku í Norðurlandasamstarfinu.

Fundurinn hefst með pólitískum umræðufundi þar sem  fjallað verður  um loftslagsbreytingarnar og áhrif þeirra á frumframleiðslugreinarnar og hvernig  lífhagkerfin svo sem í sjávarútvegi og landbúnaði geta brugðist við þeim og hagnýtt sér þær.

Síðari hluti fundrins fjallar síðan um ýmis málefni sem efst eru á baugi í Norðurlandasamstarfinu, s.s. íslensku formennskuáætlunina um norrænu lífhagkerfin (NordBio), vandamál vegna lyfjaónæmra baktería og deilur um síld og makríl.