Fiskmarkaðir á Íslandi hafa skorað á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa,karfa, keilu og löngu.

Í frétt frá Fiskmarkaði Íslands, Fiskmarkaði Suðurnesja og Reiknistofu fiskmarkaða segir að með stórfelldum niðurskurði á aflaheimildum sl. haust sé vegið að grundvallarstarfsemi fiskmarkaða í landinu.

,,Afleiðingar þessa mikla niðurskurðar eru tvennskonar hvað varðar framboð á fiskmörkuðum. Margar útgerðir eru nú í byrjun marsmánaðar að stöðvast og einnig hefur niðurskurðurinn þær afleiðingar að nánast ekkert framboð er á leigumarkaði með aflaheimildir. Fjöldi fiskvinnslufyrirtækja sem byggja vinnslu á hráefnisöflun með kaupum á íslenskum fiskmörkuðum eru nú í mjög alvarlegri stöðu og sjá í raun ekki fram á annað en fjöldauppsagnir fiskvinnslufólks. Slíkt mun hafa alvarlegar afleiðingar á mörkuðum okkar erlendis með íslenskar sjávarafurðir. Niðurskurður aflaheimilda og algjört frost á leigumarkaði hefur hvað mest áhrif á þær útgerðir sem staðið hafa undir stöðugu framboði á íslenskum fiskmörkuðum.

Með hliðsjón af aflabrögðum undanfarna mánuði teljum við að engin hætta sé tekin þótt aflaheimildir verði auknar verulega og er í því sambandi hægt að vitna í útreikninga Hafró.

Við skorum því á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa, karfa, keilu og löngu,“ segir ennfremur í frétt frá fiskmörkuðunum.