Í nýliðnum aprílmánuði nam salan á íslensku fiskmörkuðunum 1.645 milljónum króna. Þetta er næstmestra sala í apríl frá upphafi markaðanna. Aðeins í fyrra var söluverðmætið meira eða 1.799 milljónir. Samdrátturinn milli ára er 8,6%.
Seld voru 8.701 tonn í mánuðinum sem er í meðallagi. Í apríl 2008 voru seld 10.374 tonn. Þetta er 16% samdráttur sem skýrist meðal annars á því að páskarnir voru í apríl þetta árið en í mars í fyrra.
Meðalverð í apríl í ár var 189,01 kr/kg sem er 9% hærra en í apríl 2008. Þetta er hæsta verð sem sést hefur í aprílmánuði. Hægt er að sjá þróun meðalverðs á hinum ýmsu tegundum á vefsíðu RSF ( www.rsf.is ).