Fiskmarkaður Vestfjarða hefur gert samstarfssamning við keraleigufyrirtækið iTUB ehf sem mun sjá fiskmarkaðnum og þeirra viðskiptavinum fyrir kerum fyrir landaðan afla sem lagður er upp til fiskmarkaðarins á Bolungarvík, Suðureyri, Þingeyri og Flateyri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum.
Þar segir að Fiskmarkaður Vestfjarða er með aðsetur í Bolungarvík en selur einnig fisk frá Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Stærstur hluti af þeim afla sem seldur er frá Fiskmarkaði Vestfjarða er línuveiddur fiskur. Fiskmarkaður Vestfjarða selur 12.000 - 14.000 tonn á ári og boðinn er upp fiskur alla uppboðsdaga ársins.
iTUB er með skrifstofur í Noregi, Danmörku og á Íslandi. Félagið varð tíu ára í febrúar 2020 en hefur verið á Íslandsmarkaði síðan 2014. iTUB býður eingöngu upp á ker með PE einangrun, sem þykir henta mun betur í leigufyrirkomulag sökum styrks og endingar, auk þess sem PE ker eru að fullu endurvinnanleg.
„ITUB hefur myndað sér heildstæða stefnu hvað varðar endurnýtingu og endurvinnslu og Fiskmarkaður Vestfjarða fær til að mynda til sín nokkur fyrstu kerin sem framleidd eru hjá Sæplasti á Dalvík úr endurunnum eldri kerum. Þetta er til marks um mikinn metnað iTUB hvað umhverfismál varðar og við verðum öll að taka ábyrgð á okkar hluta af keðjunni,“ segir Samúel Samúelsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Vestfjarða, í tilkynningunni.
„Við hjá iTUB erum mjög spennt fyrir samstarfinu. Fismarkaður Vestfjarða er einn stærsti fiskmarkaðurinn á Íslandi og þetta er mikil áskorun fyrir okkur en þó liður í stefnu okkar að bjóða bestu og öruggustu kerin á markaðnum fyrir sjávarútveg í Norður Atlantshafi, hvað varðar öryggi notenda, matvæla og hvað varðar endurnýtingu og ekki síst endurvinnslu, segir Hilmir Svavarsson, framkvæmdastjóri iTUB, þar einnig.