Fiskistofa og Landhelgisgæslan hafa undirritað samstarfssamning til fimm ára, meðal annars um fiskveiðieftirlit og gagnkvæma miðlun upplýsinga.

Fiskistofa segir á vef sínum að með þessum samningi hafi „árangursríkt samstarf stofnanna verið formfest“ og það undirstriki vilja beggja aðila til að „efla samstarf sín á milli í tengslum við eftirlit með fiskveiðum.“

Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Ögmundur Knútsson Fiskistofustjóri handsala samninginn. Aðsend mynd
Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Ögmundur Knútsson Fiskistofustjóri handsala samninginn. Aðsend mynd

„Samningnum er meðal annars ætlað að samhæfa viðbrögð, markmið og áherslur í tengslum við fiskveiðieftirlit. Einnig er markmið samningsins að sjá til þess að öflun og miðlun upplýsinga milli stofnana sé markviss og reglubundin og að til staðar séu samhæfðar aðgerðaráætlanir.“

„Það verður áhugavert og skemmtilegt verkefni að efla og þróa áfram samstarfið. Nýta tækniframfarir og reynslu starfsfólks beggja stofnana til sameiginlegra verkefna er snúa að verndun og viðhaldi á helstu auðlind þjóðarinnar.“