Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í ágúst og minnir á að allar upptökur séu skoðaðar vel og fiskur sem fari fyrir borð sé tegundargreindur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fiskistofu í dag. Þar segir að mikilvægt sé að sjómenn og útgerðaraðilar þekki vel reglur og lög um stjórn fiskveiða og nefnd eru nokkur atriði sem mikilvægt sé að huga að:
- Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.
- Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.
- Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.
- Sleppa á lifandi grásleppu sem fæst í þorskfisknet.
- Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.
- Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.
- Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.
- Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.
- Ganga skal úr skugga um að aflinn sé lífvænlegur áður en honum er sleppt.
- Skrá á tegund alls afla sem sleppt er ásamt áætlaðu magni í kílóum með rafrænum hætti í afladagbók eða snjallforrit.
Þá segist Fiskistofa hvetja útgerðir til að fræða áhafnir um meðferð afla og ítrekar að umgengi við afla þurfi að stuðla að lífvænleika hans ef ætlunin sé að nýta framangreindar undanþágur.