Eftirlitsmenn Fiskistofu munu  fljúga drónum til eftirlits í ágúst að því er kemur frá vef stofnunarinnar sem kveðst vilja minna á að allar upptökur séu skoðaðar vel. Fiskur sem fari fyrir borð sé tegundargreindur.

„Fiskistofa vil því biðja sjómenn og útgerðaraðila að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða,“ segir í tilkynningu á fiskistofa.is.

Þá eru nefnd nokkir atriði sem sjómenn eru beðnir að hafa í huga:

Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.

Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.

Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.

Sleppa á grásleppu sem fæst í  þorskfiskanet.Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.

Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.

Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.

Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.