Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað rúmlega 465 milljónum kr. til 15 verkefna í sjö sveitarfélögum. Stærsti styrkurinn, 134,5 milljónir kr., renna til þriggja verkefna í Fjarðabyggð.

Alls bárust 30 umsóknir frá sjö sveitarfélögum sem námu rúmlega 1,7 milljarði króna, tæplega fjórfalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.

Bolungarvík hlaut 43.250.000 kr. þar af renna 2.880.000 kr. til að standa straum af kostnaði við göngustíga og aðkomu að „Sandinum“ við Tjarnarkamb í Bolungarvík og 40.370.000 kr. fara í Lundahverfi - nýtt íbúðahverfi í Bolungarvík.

Fjarðabyggð hlaut 134.520.000 kr. Þar af fara 44.840.000 kr. í
endurbætur á Íslenska stríðsárasafninu, Fjarðarbyggðarhöllun fær sömu upphæð til að laga þak og skipta um ljós og fráveitan á Eskifirði einnig sömu fjárhæð.

Ísafjarðabær hlaut 76.660.000 kr. Þar af renna 44.840.000 kr. til Slökkvistöðvar Ísafjarðarbæjar og 31.820.000 kr. til upphitun aðalvallar Torfness.

Múlaþing hlaut 44.840.000 kr. sem renna í 1. áfanga í stækkun leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi.

Strandabyggð hlaut 8.690.000 kr. sem renna til vatnsveitu í Strandabyggð,
húsnæði og geislunarbúnað.

Súðavík hlaut 61.270.000 kr. sem notaðar verða fyrir heita potta og aðstöðu í Súðavík, alls 35.610.000 kr. og 25.660.000 kr. fara til kaupa á slökkvibíl.

Vesturbyggð fær alls 95.840.000 kr. Þar af renna 44.840.000 kr. til byggingar Bíldudalsskóla, 7.760.000 kr. til fráveitu Bíldudal, 7.110.000 kr. til fráveitu Patreksfirði og 36.130.000 kr. til skólalóðar Patreksskóla.

Úthlutun 2021 – 2025

Frá stofnun sjóðsins 2021 hafa tæplega 1.440 milljónir króna runnið til fjölbreyttra og krefjandi verkefna í viðkomandi sveitarfélögum sem hefur auðveldað þeim að mæta vaxandi kröfum íbúa og atvinnulífs í takt við aukin umsvif í sjókvíaeldi.