„Skammsýni stjórnmálamanna, bæði á Íslandi og í öðrum vestrænum ríkjum, er áhyggjuefni,“ segir Stein Ove Tveiten sem lét nýlega af störfum sem forstjóri Artic Fish í viðtali við Bæjarins Besta á Ísafirði.

„Of oft eru ákvarðanir teknar út frá viðbrögðum á samfélagsmiðlum eða næstu kosningum, frekar en langtímasýn. Þar að auki er vaxandi fjarlægð milli stjórnkerfisins og raunverulegrar verðmætasköpunar í samfélaginu,“ heldur Stein Ove áfram. „Gott dæmi um þetta eru nýlegar tillögur um breytingar á veiðigjaldi. Þær virðast drifnar áfram af kosningaloforðum, en langtímaáhrifin gætu orðið mjög alvarleg fyrir iðnaðinn.“

Stein Ove er þarna að ræða sýn sína á stöðu fiskeldis á Íslandi.

Háir skattar haldi aftur af fiskeldinu

„Iðnaðurinn hefur vaxið hratt undanfarin tíu ár og náð mikilvægu umfangi með öllum nauðsynlegum þáttum í virðiskeðjunni og innviðum. Tilraunir í fyrri tíð voru takmarkaðri, en nú er betri blanda af þolinmóðu fjármagni og rekstrarþekkingu. Ég tel að fiskeldi eigi góða framtíð á Íslandi, en áttin og árangurinn mun ráðast af pólitísku umhverfi,“ hefur Bæjarins Besta eftir Norðmanninum sem starfaði í rúm sjö ár hér á Íslandi.

„Það sem veldur áhyggjum er að núverandi umgjörð, með háum og ósamkeppnishæfum sköttum, heldur aftur af iðnaðinum. Þetta setur nauðsynlegar fjárfestingar í hættu, sem hefur áhrif á verðmætasköpun bæði fyrir fyrirtækin og samfélögin,“ segir Stein Ove Tveiten einnig í ítarlegu viðtali sem lesa má í heild á bb.is.