Fiskafli íslenskra skipa í maí 2016 var rúmlega 106 þúsund tonn, sem er 26% minni afli en í maí í fyrra, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.
Uppsjávarafli minnkaði um 41%, fór úr 90 þúsund tonnum niður í tæp 58 þúsund tonn. Botnfiskafli í maí jókst um 8%, fór úr tæpum 40 þúsund tonnum í tæp 43 þúsund tonn, þar af jókst þorskafli um 20%. Á 12 mánaða tímabili hefur aflamagn minnkað um rúmlega 214 þúsund tonn á milli ára, sem er mest megnis vegna minni uppsjávarafla. Aflinn í maí metinn á föstu verði var 5,5% meiri en í maí 2015.