FISK-Seafood hlaut í liðinni viku viðurkenningu fyrir góðan árangur í öryggis- og umhverfismálum í flokki fyrirtækja með yfir 100 starfsmenn á Forvarnaráðstefnu VÍS.

Þetta kemur fram á vef FISK-Seafood. Þar segir að fyrirtækið hafi fengið sömu viðurkenningu árið 2014. Þá hafi félagið verið ötull þátttakandi í hönnun og innleiðingu á atvikaskráningakerfi sjómanna.

Bjarni Guðjónsson, forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta VÍS, Stefanía Inga Sigurðardóttir, gæða- og öryggisstjóri FISK-Seafood og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu VÍS
Bjarni Guðjónsson, forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta VÍS, Stefanía Inga Sigurðardóttir, gæða- og öryggisstjóri FISK-Seafood og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu VÍS

Segir í færslunni á vef FISK að eftir því sé tekið hversu athafnasvæði félagsins sé snyrtilegt og hvernig það hafi unnið að bættum aðbúnað starfsmanna og stuðlað að heilsueflingu á vinnustað.

„Starfsmenn eru duglegir að nýta sér atvikaskráningakerfi og stjórnendur bregðast við, rannsaka og gera úrbætur á þeim atvikum sem upp koma. Við erum virkir þátttakendur í verkefni Eldvarnabandalagsins og eru fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið sem innleiðir verklag þess. Við höfum einnig verið dugleg að hvetja aðra áfram, deilum okkar reynslu og þekkingu með öðrum fyrirtækjum sem vilja byggja upp sitt vinnuverndarstarf auk þess að vera virkur þátttakandi í öryggishópi SFS,“ segir á fisk.is.

Langt frá því fullkomin og geta gert betur

Þá segir að árangur í öryggismálum náist ekki nema að allir leggist á eitt. Stjórnendur verði á setja gott fordæmi og starfsmenn að vera virkir þátttakendur.

„FISK er einstaklega heppið með starfsfólk og við viljum öll að okkur líði vel vinnunni og stefnum auðvitað öll á að koma heil heim að vinnudegi loknum,“ segir áfram á fisk.is. „Það er þó ekki svo að við séum fullkomin, langt því frá, við getum alltaf gert betur. Öryggisvegferðinni er aldrei lokið, það þarf að byggja upp sterka öryggismenningu á starfsstöðvunum. Við erum að takast á við nýjar áskoranir daglega, við erum mannleg og við þurfum að mæta því óvænta.“