„Blendingar og afkvæmi eldislaxa fundust einkum í ám nærri eldissvæðum en dæmi voru um blendinga í 200 til 300 kílómetra fjarlægð,“ segir Hafrannsóknastofnun í kynningu á nýrri skýrslu um áhrif sjókvíaeldis á villta laxastofna á Íslandi.

Um er að ræða samantektarskýrslu um vöktun Hafrannsóknastofnunar 2024. Vöktunin er skipt niður í nokkra þætti; vöktun með fiskteljurum, greiningu og rakningu meintra strokulaxa úr eldi, greiningu á lífssögu strokulaxa með hreisturrannsóknum og rannsóknir á erfðablöndun.

Engir strokulaxar í myndavélateljurum

„Helstu niðurstöður voru að engir strokulaxar greindust í myndavélateljurum 13 áa. Á stofnuninni voru greindir 30 strokulaxar sem veiðst höfðu í ám og vötnum; sjö komu úr stangveiði og 23 úr æfingarferð Hafrannsóknastofnunar og NORCE í rekköfun. Með samanburði á arfgerðum strokulaxa og klakhænga var hægt að rekja flesta til strokstaða.

Sex voru úr strokatburðinum í Kvígindisdal í Patreksfirði 2023 meðan aðrir fiskar komu mögulega úr sex nýjum strokum á Vestfjörðum. Greining á vaxtarmynstri í hreistri studdi þær niðurstöður og einnig fundust gotmerki í hreistri nokkurra eldislaxa. Erfðablöndun var könnuð í 5.026 laxaseiðum úr 76 ám sem er afrakstur sýnatöku áranna 2023 og 2024,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar.

Huga að köfun til að fjarlægja laxa

Þá segir að alls hafi greinst 42 blendingar í 15 fimmtán ám og eldri erfðablöndun hafi greinst meðal 152 seiða í 23 ám og tólf seiði af hreinum eldisuppruna fundist í fjórum ám. „Blendingar og afkvæmi eldislaxa fundust einkum í ám nærri eldissvæðum en dæmi voru um blendinga í 200 til 300 kílómetra fjarlægð,“ segir í tilkynningunni.

„Í skýrslunni eru veiðimenn hvattir til að vera á varðbergi gagnvart hugsanlegum eldiseinkennum veiddra laxa og hafa samband við Hafrannsóknastofnun ef grunur er um að laxar séu af eldisuppruna. Eins eru veiðimenn og veiðiréttahafa hvattir til að gera átak í hreistursýnatöku og skila inn til greiningar á stofnuninni. Fram kemur að í ljósi þeirrar erfðablöndunar sem greinist þurfi að huga að rekköfun í ám í því skyni að fjarlægja eldislaxa og meta stærð villtra laxastofna,“ segir Hafrannsóknastofnun.

Skýrsluna má finna hér.