Ísfisktogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson AK er nú á landleið með um 110 til 115 tonna afla af Vestfjarðamiðum, að því er fram kemur á vef HB Granda . Er rætt var við Eirík Jónsson skipstjóra fyrr í dag var skipið statt vestur af Barðanum og áætlaður komutími til Reykjavíkur er snemma í fyrramálið.
,,Það er búin að vera fínasta veiði í allt sumar en maður finnur að þorskurinn er aðeins farinn að gefa eftir á Vestfjarðamiðum og karfaveiðin sömuleiðis. Menn áttu alveg von á því að karfaveiðin drægist saman þegar kæmi fram í ágúst líkt og gerðist í fyrrasumar. Það er hins vegar enn nóg af ufsa á miðunum og það er í samræmi við væntingar,“ segir Eiríkur.