„Vinnan við mælinguna gengur vel en ég get ekkert tjáð mig um magnið,“ segir Geir Zoëga, skipstjóri á uppsjávarskipinu Polar Ammassak sem nú tekur þátt í loðnuleiðangri Hafrannsóknastofnunar.

Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða NK, sem einnig er í loðnuleiðangrinum og er fyrir austan land eins og Polar Ammassak, tekur í sama streng og Geir.

Leit að ljúka fyrir austan land en nýhafin fyrir norðan

„Þessi fiskur sem við erum búnir að taka prufur úr er bara stór og fínn,“ segir Þorkell en undirstrikar að hann geti ekkert sagt um magnið.

Búast má við að Barði NK og Polar Ammassak, sem hófu leiðangurinn á fimmtudag í síðustu viku, ljúki sínum þætti hans á morgun eða annað kvöld eftir aðstæðum. Vegna veðurs var það hins vegar ekki fyrr en í gærkvöldi sem hin skipin tvö í leiðangrinum, rannsóknaskipið Árni Friðriksson og Heimaey VE, hófu sinn hluta leitarinnar fyrir norðan land.

Nánar er rétt við Geir og Þorkel í Fiskifréttum sem koma út á morgun.

Sjá má ferla skipanna fjögurra sem taka þátt í loðnuleiðangrinum á vef Hafrannsóknastofnunar.
Sjá má ferla skipanna fjögurra sem taka þátt í loðnuleiðangrinum á vef Hafrannsóknastofnunar.