„Það er fínasta veiði og það má segja að erfiðast sé að skammta sér aflann. Það er mjög gott að fá ekki meira en 300 til 400 tonn í holi og mesta hættan er sú að þegar maður reynir að skammta sér til tekið magn að þá verði aflinn minni,“ sagði Hjalti Einarsson, skipstjóri á Víkingi AK, er heimasíða HB Granda ræddi við hann um helgina.
Er rætt var við Hjalta var verið að undirbúa síðasta fyrirhugaða holið en að sögn skipstjórans verður að koma í ljós hvort það gangi eftir.
„Veiðin er best í dimmunni og þess eru dæmi að menn hafi fengið mjög góð hol á örstuttum tíma þegar togað er í góðu lóði. Hvort það gengur eftir hjá okkur verður að koma í ljós. Við vorum í veiði til að byrja með en svo tregaðist hún og við sigldum um 100 mílur beint í suður. Hér erum við beint vestur af syðsta odda Írlands og veiðin hefur verið góð. Skipunum hefur fækkað á slóðinni eins og oft gerist þegar veiðin er góð. Fiskurinn er ágætur og stærri en sá kolmunni sem við höfum oft fengið við Færeyjar,“ segir Hjalti.