Fimmtíu stærstu sjávarútvegsfyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 86% af því aflamarki sem úthlutað er og er það álíka og í fyrra, að því er fram kemur á vef Fiskistofu í frétt um kvótaúthlutun í upphafi nýs fiskveiðiárs sem hófst í dag.
Alls fá 459 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað aflamarki nú eða um 30 aðilum færra en í fyrra. Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi, líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 10,7% af heildinni, næst kemur Samherji með 6% og þá Þorbjörn hf. með 5,5%. Þetta er sama röð efstu fyrirtækja og undanfarin ár.
Að þessu sinni er úthlutað 376.026 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 378.828 þorskígildistonnum á sama tíma í fyrra, reiknað í þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð . Inni í þessum tölum eru ekki aflaheimildir í tegundum sem úthlutað er í upphafi almanaksárs, svo sem kvóti í norsk-íslenskri síld.
Alls fá 578 skip úthlutað aflamarki í upphafi fiskveiðiárs 2014/2015. Mest aflamark fer til Guðmundar í Nesi, RE 13, rúm 8.553 þorskígildistonn eða tæp 2,3% af úthlutuðum þorskígildum.