Í lok apríl hafði saltfiskvinnsla Vinnslustöðvarinnar unnið úr fimm þúsund tonnum af hráefni á yfirstandandi vetrarvertíð.

„Það er að langstærstum hluta þorskur sem er saltaður fyrir Portúgalsmarkað en einnig er hluti af þorsknum sem fer til Spánar. Að auki vinnum við ufsa til söltunar en hann endar á mörkuðum í Suður–Ameríku og í Karíbahafi,” er haft eftir Sverri Haraldssyni, sviðsstjóra botnfiskssviðs Vinnslustöðvarinnar, á vef fyrirtækisins.

Segir Sverrir að vel hafi gengið í vetur, bæði veiðarnar og vinnslan í landi.

Makrílinn tekur við í sumar

„Starfsfólk okkar vinnur langa daga á þessum árstíma og leggur hart að sér, það er lykillinn að því að ná þessum árangri og afköstum,” segir Sverri á vsv.is. Nú standi lokasprettur vertíðarinnar yfir. Haldið verði áfram út maí og sumarstopp í saltfiskvinnslunni hefjist í byrjun júní.

„Þá fær fólkið í landvinnslunni frí fram að næstu törn sem verður makrílvinnsla í sumar. Markaðir fyrir saltaðar afurðir hafa verið ágætir og eftirspurn talsverð. Þó eru blikur á lofti og óvissa í efnahagsmálum í S​uður-Evrópu, sem og víða annars staðar.”