23 sérfræðingar útskrifuðust nýlega frá Sjávarútvegsskóla GRÓ. Hópurinn hefur dvalið á Íslandi við nám síðustu sex mánuði í boði íslenskra stjórnvalda sem er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Útskriftin í dag markaði ákveðin tímamót þar sem 500. nemandi Sjávarútvegsskólans var útskrifaður. Alls hafa nú 512 sérfræðingar frá þróunarlöndum lokið þjálfunarnámi frá skólanum síðan hann hóf starfsemi árið 1998.
Í útskriftarhópnum að þessu sinni voru 12 konur og 11 karlar sem komu frá alls 14 löndum: Kúbu, Ghana, Síerra Leóne, Líberíu, Angóla, Malawi, Úganda, Tansaníu, Kenía, Sri Lanka, Kína, Indónesíu Papúa Nýju-Gíneu og Sólómóneyjum. Í sínum heimalöndum starfa þessir Íslandsvinir sem sérfræðingar, ýmist á sviði stofnstærðamats, fiskveiðistjórnunar, fiskeldis eða gæðastjórnunar í fiskvinnslu.

Julie Ingham, aðstoðarforstöðumaður Sjávarútvegsskólans, bauð gesti velkomna og stjórnaði útskriftarathöfninni. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, ávarpaði samkomuna fyrir hönd utanríkisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Ræður voru fluttar af Lidia Brito, aðstoðarforstöðumanni UNESCO á sviði náttúruvísinda, og Kristina Setiani frá Indónesíu sem talaði fyrir hönd útskriftarnemenda. Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla GRÓ, stýrði afhendingu útskriftarskírteina.
Umbreytingafulltrúar
Þór lýsti þeirri von að þegar nemendurnir snúa heim verði þeir gagnrýnir á það sem fyrir augu ber og sýni hugrekki til að takast á við áskoranir – og verði þannig sannir „umbreytingarfulltrúar”. Hann þakkaði jafnframt framlag þeirra fjölmörgu aðila sem jafnaðarlega leggja stafsemi skólans lið með óeigingjarnri vinnu og velvild.
Sérstakar þakkir færði Þór fiskeldisrannsóknafyrirtækinu FIRUM í Færeyjum, en öflugur stuðningur þess á undanförnum árum hefur stórlega styrkt þjálfun skólans á sviði sjálfbærs fiskeldis.
Að athöfn lokinni var efnt til móttöku þar sem nýútskrifaðir nemendur kynntu verkefni sín fyrir gestum á sérstakri veggspjaldasýningu.