Landhelgisgæslan greinir frá því að til að tryggja að hægt sé að halda úti öflugu viðbragði á hafinu umhverfis Ísland, miðað við þær sóttvarnaráðstafanir sem nauðsynlegar eru, hafa ferðir varðskipanna verið lengdar. Hvort skip er nú fimm vikur í senn á sjó í stað þriggja eins og venjulegt er.
Upphaflega var gert ráð fyrir að varðskipið Týr kæmi til Reykjavíkur eftir þriggja vikna úthald í þessari viku en þess í stað kom skipið til höfuðborgarinnar, náði í kost, og hélt að því búnu aftur á miðin. Þá fór varðskipið Þór frá Reykjavík í vikunni og sigldi vestur á firði þar sem skipið verður til taks næstu daga.
Gripið hefur verið til umfangsmikilla varúðarráðstafana á starfsstöðvum Landhelgisgæslunnar. Ákvörðunin um aukna viðveru varðskipanna á Íslandsmiðum, vegna þess ástands sem nú ríkir, var tekin í samráði við áhafnir skipanna. Mikill skilningur var hjá áhöfnunum á mikilvægi þess lengja ferðir skipanna og voru allir tilbúnir til að leggja sitt af mörkum svo vel megi fara.