Það hefur valdið nokkru fjaðrafoki innan síldarútvegsins í Noregi, að helsti síldarsérfræðingur landsins, Erling Kåre Stenevik, skuli hafa kosið að vera í feðraorlofi meðan stofnmæling ársins á norsk-íslensku síldinni stendur yfir í ár.
Frá þessu er skýrt í Fiskeribladet/Fiskaren í dag. Ástæðan fyrir óánægjunni er sú að í vetur hafa norskir síldarsjómenn gagnrýnt harðlega mat fiskifræðinga á síldarstofninum. Þeir telja að margfalt meira af síld hafi verið á miðunum í vetur en mælingar vísindamanna hafi gefið tilefni til og þar af leiðandi sé matið rangt og veiðikvótar of litlir.
Sérfræðingar norsku hafrannsóknastofnunarinnar hafa staðið fast við mat sitt á stofninum og hefur Stenevik verið þar fremstur í flokki. Stofnmat þeirra er 4,12 milljónir tonna. Kvótinn var skertur um 30% milli áranna 2013 og 2014 og varað hefur verið við frekari skerðingu á næsta ári.
Upplýsingafulltrúi norsku hafrannsóknastofnunarinnar furðar sig á umræðunni um feðraorlof vísindamannsins og segir hana út úr öllu korti. Sama gerir leiðarahöfundur Fiskeribladet/Fiskaren.
Síldarleiðangurinn umræddi er þegar hafinn og auk Norðmanna taka rannsóknaskip frá Íslandi, Færeyjum, Rússlandi og Evrópusambandið þátt.