Björgvin Jónsson, háseti á Viðey RE og myndlistarmaður, sýndi verk sín á sjómannadaginn í Mathöllinni á Granda.

Nítján ára gamall fór Björgvin til New York og sótti myndlistarmenntun til School of Visual Arts á Manhattan. Í kjölfarið starfaði hann í eitt ár hjá uppboðshúsinu Sotheby‘s og ferðaðist þar á eftir um Suður-Evrópu í hálft ár áður en hann kom heim til Íslands í heimsfaraldrinum.
„Um leið og ég kom heim fannst mér eins og sjórinn væri að kalla á mig,“ segir Björgvin. Þetta hafi kannski ekki verið skrítið því hann eigi ættir að rekja til Ísafjarðar og Hnífsdals. Faðir hans hafi verið sjómaður og afi hans, Kristján Jóakimsson, hafi verið skipstjóri á Páli Pálssyni.
Áhöfnin er geggjuð
Reynslulaus til sjós segist hann hafa hringt í Jóhannes Ellert Eiríksson, þáverandi skipstjóra á Viðey RE, og falast eftir skipsplássi. „Elli var ekki sérstaklega hrifinn fyrst en þegar ég sagði honum að ég væri barnabarn Kristjáns Jóakimssonar sagði hann að ég yrði að koma því að hann þekkti allt mitt fólk og afi hefði hjálpað honum þegar hann var sjálfur ungur,“ segir Björgvin sem síðan hefur átt sitt pláss á Viðey. Áhöfnin sé mest öll í eldri kantinum.
„Ég var með hanakamb og skrúfur í skegginu og strákarnir spurðu sig hvaða miðbæjarrotta væri nú þarna mætt. Það talaði eiginlega enginn við mig í hálft ár,“ rifjar Björgvin upp. Hann hafi hins vegar unnið sig inn í hópinn með eljusemi.
Eins og draumur á Viðey RE
„Við erum allir bestu vinir í dag,“ segir Björgvin og telur síðan upp nöfn skipsfélaga sinna sem hann kveður alla vera toppmenn.
„Þeir eru algjörir naglar og mínir menn. Mig langar að þakka þeim fyrir allan innblásturinn,“ segir Björgvin sem elskar að fara á sjóinn. „Þetta er eins og draumur. Áhöfnin er geggjuð og það er alltaf gaman í vinnunni.“
Vinnur í plexígler

Verk sín vinnur Björgvin í plexígler og mótífin sækir hann á haf út þar sem hann teiknar það sem hann sker síðan út í landi og púslar saman. Hann hefur meðal annars sýnt í New York, Los Angeles og á Kýpur auk þess að hafa sýnt hér heima. Hann segir fáa vita af sér. „Amma sagði að ég væri skemmtilegasta falda leyndarmálið á Íslandi.“
Á sýningunni á sjómannadaginn var viðfangsefnið mismunandi fiskar í kari. Næst ætlar Björgvin að gera skipsfélögum sínum skil og er þegar byrjaður að teikna portrett af þeim. „Þeir eru allir með sjómannahjálminn á sér og eru geðveikt nettir með sjóinn í bakgrunni. Þetta verður á næstu sýningu hjá mér sem verður bara örugglega næsta sjómannadag.“