Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar tillögum um ráðstöfun veiðileyfagjalds frá starfshópi sjávarútvegsráðherra er fela í sér viðurkenningu á þeirri miklu tilfærslu fjármagns sem við lýði er frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins og styður þá viðleitni sem í tillögunum er að finna til að tekjurnar komi til baka, a.m.k. að hluta til.
Í tillögum starfshópsins er gert ráð fyrir að tekjur af veiðigjaldi skiptist þannig að 50% renni í ríkissjóð, 40% til sjávarbyggða og 10% til þróunar- og markaðsmála í sjávarútvegi. Sveitarfélagið bendir á að samkvæmt því verði veiðigjald einn af lögmætum tekjustofnum sveitarfélaga.
Ekki síst sé þetta mikilvægt á tímum þar sem gríðarlegur niðurskurður eigi sér stað víða um land, m.a. í heilbrigðis- og samgöngumálum, á sama tíma og atvinnulífið og ekki síst fyrirtæki á landsbyggðinni séu látin bera æ meiri skattbyrði.