Öldungaráð Landhelgisgæslunnar heimsótti Síldarminjasafnið á Siglufirði í gær og höfðu togvíraklippur af Ægi meðferðis. Klippurnar voru færðar safninu til varðveislu.
Þetta kemur fram í frétt safnsins þar sem segir:
„Eins og þekkt er voru togvíraklippur helsta vopn Íslendinga í þorskastríðunum og var þeim fyrst beitt þann 5. september 1972. Sigurbjörn Svavarsson, þá 3. stýrimaður á Ægi tók þátt í fyrstu klippingunni var meðal afhendanda – en í hópnum voru allmargir sem beittu slíkum klippum á meðan þorkastríðunum stóð.“
Veiðarfærin voru klippt aftan úr 147 togurum á árunum 1972 - 1975 og klippti Ægir aftan úr flestum þeirra, eða alls 51.
Á myndinni eru þau Anita Elefsen safnstjóri Síldarminjasafnsins, Halldór B. Nellett formaður öldungaráðs LHG, Sigurbjörn Svavarsson sem tók þátt í fyrstu klippingunni, Einar G. Valsson skipherra á Freyju og Auðunn Kristinsson verkefnisstjóri á aðgerðasviði og framkvæmdastjóri siglingasviðs.