Í septembermánuði hafa ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE verið að veiðum fyrir austan land og að mestu landað í Neskaupstað en einnig á Seyðisfirði. Vestmannaey landaði svo í heimahöfn í Vestmannaeyjum sl. þriðjudag og Bergey landað þar síðan í gær. Skipin eru nú að taka áhafnarfrí í Eyjum.
Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar sem ræddi við Egil Guðna Guðnason, skipstjóra á Vestmannaey.
„Það hefur fiskast alveg þokkalega. Aflinn hefur verið blandaður en áfram halda vandræðin með ýsuna. Það er alls staðar ýsa og skipin eru á flótta undan henni. Nú urðum við að fara til Eyja og taka áhafnarfrí og síðan var einnig skipt um togvíra. Það var kominn tími á að endurnýja vírana en það hefur ekki áður verið skipt um víra á þessu skipi eða í ein tvö ár. Aflinn, sem við lönduðum núna fékkst í Berufjarðarál og á Öræfagrunni,“ segir Egill Guðni.