Heimasíða Síldarvinnslunnar fjallar um það að síðustu veiðiferðir kvótaársins eru oft sérstakar og mótast af því hver kvótastaða útgerða í einstökum tegundum er.
Þar segir að Vestmannaey VE landaði í Eyjum að aflokinni síðustu veiðiferð kvótaársins síðastliðinn þriðjudag. Aflinn var 65 tonn, mest djúpkarfi og ufsi.
Egill Guðni Guðnason var skipstjóri í veiðiferðinni og segir í spjalli við heimasíðuna að lögð hafi verið áhersla á að ná í tilteknar tegundir svo sem minnst dytti niður dautt um kvótaáramótin.
„Við vorum á Selvogsbankanum, Víkinni og í Reynisdýpinu og við vorum að rembast við að ná í þær tegundir sem þurfti í lok kvótaársins. Þetta tókst sæmilega hjá okkur en á síðustu stundu komu síðan skilaboð frá ráðuneytinu um að reglunum um hve mikið mætti geyma á milli ára hefði verið breytt þannig að allt okkar stress reyndist óþarft. Það var aukið við það sem mátti geyma bæði í ufsa og djúpkarfa,“ segir Egill Guðni.
Bergey VE landaði 50 tonnum af djúpkarfa í Vestmannaeyjum sl. sunnudag í síðustu veiðiferð kvótaársins en síðan kom hún til Neskaupstaðar í dag þar sem landað verður um 60 tonnum af blönduðum afla.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, segir í frétt Síldarvinnslunnar að kvótaáramót séu ávallt ákveðin tímamót.
„Kvótaáramót fela í sér nýtt upphaf og við byrjum kvótaárið með því að landa á Norðfirði. Aflann fengum við á Lónsbugtinni, á Gauraslóð og í Litladýpi. Það verður haldið á ný til veiða seinnipartinn í dag eða í kvöld. Við komum til með að njóta austfirsku blíðunnar í dag," segir Jón.