Smitandi ILA-vírus hefur verið staðfestur í sjókví norska laxeldisfyrirtækins Nordlaks Havbruk í Dragnes í Hadsel.

Að því er segir á salmonbusiness.com kom þetta í ljós í kjölfar aukinnar dánartíðni í einni kví Nordlaks. Sýni hafi verið tekin 28. maí og 5. júní. Von sé á lokagreiningu sýnanna síðar í þessari viku en Nordlaks hafi þegar ákveðið og sé byrjað á að slátra öllum laxinu á svæðinu.

„Þetta er erfið ákvörðun en nauðsynleg til að hefta frekari útbreiðslu sjúkdómsins,“ er haft eftir Eirik Welde, forstjóra. „Þörungablómi nýlega og nú ILA-faraldur hafa veruleg áhrif á starfsemi okkar. Við erum að vinna að því að lágmarka afleiðingarnar.“

Laxinn í Dragnes var settur út haustið 2024 og er nú að meðaltali 850 grömm. Um það bil 1,9 milljón laxa eru í stöðinni.

Þótt ILA sé alvarlegur og smitandi sem vírussjúkdómur í laxfiskum þá mun fólki engin hætta búin af honum.