Togarinn Baldvin frá Cuxhaven, sem er í eigu dótturfyrirtækis Samherja í Þýskalandi, kom til Dalvíkur í gærkvöld og landaði þar um 200 tonnum af ferskum bolfiski, aðallega þorski.

Byrjað var að vinna aflann kl. fjögur aðfaranótt pálmasunnudags í landvinnslu Samherja á Dalvík og fór hluti af afurðunum með flugi á Frakklandsmarkað síðastliðna nótt. Fiskurinn var veiddur í Barentshafi, úr veiðiheimildum Evrópusambandsins.

Löndunin markar ákveðin tímamót því þetta er í fyrsta sinn í meira en tvo áratugi sem ferskum afla úr skipi frá Evrópusambandslandi er landað til vinnslu á Íslandi, að því er segir á vef Samherja.

.