v
Í fréttatilkynningu frá norskum og evrópskum útgerðum er fullyrt að minna sé af makríl en áður í íslenskri lögsögu. Það gengur þvert gegn nýlegum rannsóknum þar sem fram kemur að 1,5 milljónir tonna hafi mælst í ár í íslensku lögsögunni en árið 2010 og 2011 mældist 1,1 milljón tonna í lögsögunni hvort ár, að því er fram kemur á vef LÍÚ.
Niðurstaða sameiginlegs rannsóknaleiðangurs Hafrannsóknarstofnana Íslands, Noregs og Færeyja, sýnir að aldrei hefur mælst meira af makríl í íslensku fiskveiðilögsögunni og í ár. Það styrkir málstað Íslands í þeim viðræðum sem fyrirhugaðar eru á milli Íslands, ESB og Noregs í næstu viku.
„Það er auðvitað sorglegt að norskir og evrópskir útgerðarmenn skuli enn og aftur reyna að afvegaleiða umræðuna með þessum hætti. Þetta sýnir best hvað þeir hafa vondan málstað að verja og verður þeim ekki til framdráttar," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna í frétt á vef LÍÚ.
Útgerðir í Noregi og ESB hafa krafist þess að fullri hörku verði beitt gegn Íslendingum og meðal annars verði viðræðum um aðild Íslands að ESB verði frestað.
„Við höfum aldrei verið sérstakir aðdáendur aðildarumsóknarinnar þannig að hótun um frestun viðræðna kemur okkur ekki úr jafnvægi. Stóra málið er að makríll gengur í auknum mæli inn í íslensku lögsöguna og við höfum sama rétt og Noregur og ESB til makrílveiða. Verkefnið er sem fyrr að ná samkomulagi um stjórn veiðanna og tryggja sanngjarnan hlut Íslands í þeim," segir Friðrik.
Fréttatilkynningu norskra og evrópskra útgerðarmanna má nálgast hér.