,,Það er rangt að Nepune ehf. hafi keypt norska uppsjávarskipið Röttingöy eða eigi dótturfélag á Kýpur. Hið rétta er að við höfum tekið að okkur að verða rekstraraðili skipsins til að byrja með,“ sagði Ágúst Guðmundsson hjá Neptune ehf. á Akureyri í samtali við Fiskifréttir.
Ágúst vill með þessu leiðrétta frétt hér á vefnum í gær, en hún var byggð á upplýsingum sem hafðar voru eftir seljanda skipsins á norska fréttavefnum midtsiden.no. Kaupandi skipsins er félag á Kýpur sem ekki er í eigu Íslendinga.
Skipið verður gert út til veiða á sardínu við strendur Marokkó og mun leggja upp aflann þar í landi. Ágúst sagði að stefnt væri að því að veiðar gætu hafist eftir mánuð að loknum breytingum skipinu sem gerðar verða í Slippnum á Akureyri.