Í gær var góð makrílveiði austur af landinu að því er segir á vef Síldarvinnslunnar.

„Voru skip jafnvel að fá um og yfir 400 tonn í holi. Síldarvinnslu- og Samherjaskipin sem eru í veiðisamstarfi voru að veiðum 80 til 100 mílur austur af Norðfjarðarhorni,“ segir á sildarvinnslan.is.

Kemur fram að Margrét EA hafi komið til Neskaupstaðar með 1.150 tonn á miðvikudaginn. Þá hafi verið að ljúka við að vinna rúmlega 1.500 tonn úr Beiti NK.

„Í morgun var síðan Vilhelm Þorsteinsson EA kominn til hafnar með 1.650 tonn og þá voru skipin byrjuð að setja afla um borð í Barða NK. Vinnslan í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar er því samfelld og einungis gert hlé á henni til að þrífa. Fiskurinn sem skipin færa að landi er mjög stór eða um og yfir 600 grömm og er hann fullur af átu,“ segir í fréttinni.

Áta er sögð vera í fiskinum svo ekki sé unnt að heilfrysta hann heldur sé hann annað hvort hausaður eða flakaður.

„Fréttir herma að makrílveiði sé heldur að glæðast í Smugunni en þar eru grænlensku skipin Polar Amaroq og Polar Ammassak að veiðum,“ segir einnig á vef Síldarvinnslunnar.