Fjórða mót ársins í mótaröð til Íslandsmeistara hjá Landssambandi sjóstangaveiðifélaga var haldið á Patreksfirði síðastliðinn föstudag og laugardag.

„Þetta hefur tekist frábærlega vel,“ segir Kjartan Gunnsteinsson, formaður Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur, um gang mála hingað til. „Fyrsta mótið var á Akranesi í apríl og þar var mjög góð veiði. Næsta mót var í Ólafsvík og það þriðja í Vestmannaeyjum um hvítasunnuhelgina.“
Kynningarmót var haldið á vegum Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur í mars.
„Það gekk alveg frábærlega vel, það voru tíu nýliðar og tíu vanir sem fóru út á fimm bátum og veiddu um tíu tonn,“ segir Kjartan.
Dregið úr áhuganum
Að sögn Kjartans virðist áhugi á sjóstangaveiði minnkandi. „Það er engin nýliðun og þessir gömlu sem hafa verið mjög virkir eru margir komnir á aldur. Þannig að það er að fækka í hópnum,“ segir hann. Til dæmis hafi ekki verið nema sautján skráðir til keppni á mótinu á Patreksfirði. „Þar af eru ekki nema fimm frá Sjóstangaveiðifélagi Reykjavíkur.“
Aðspurður segist Kjartan ekki hafa sérstaka skýringu á þessari þróun. „Ætli það sé ekki bara það að unga fólkið hefur áhuga á einhverju öðru. Þessir gömlu sjóhundar sem eru á sjóstöng voru sjómenn sem ungir menn. Ég var sjálfur sjómaður þegar ég var ungur en unga fólkið núna hefur ekkert farið á sjó og þekkir ekkert sjóinn,“ segir hann.
Spurning með tímasetningu

Fólk er því mögulega að missa af tækifæri til að eiga skemmtilegar stundir á sjóstönginni.
„Af því að það voru tíu ungir nýliðar hjá okkur á kynningarmótinu vorum við að vonast til að það yrðu virkir í félaginu en því miður þá hefur enginn þeirra skilað sér,“ segir Kjartan. Kannski sé tímasetning mótanna ekki nógu heppileg.
„Þegar haldið er mót um miðjan júní er fólk farið út og austur í sumarleyfi þannig að það er spurning hvort hafa ætti mótin fyrr á árinu, jafnvel í apríl eða fyrir veiðistopp í mars. En þá er náttúrlega áhætta með veður. Við vorum mjög heppin með veður á kynningarmótinu í mars en það er ekkert alltaf þannig og stundum hafa menn orðið að fresta út af veðri.“
Enn eru eftir þrjú mót. Næsta mót verður í Neskaupstað eftir um tæpan mánuð. Síðan er mót á Siglufirði 8. og 9. ágúst og að lokum mót sem félagið á Akureyri heldur frá Dalvík um miðjan ágúst. Eftir það verður ljóst hver verður Íslandsmeistari í sjóstangaveiði 2025.