Allsherjar endurnýjun stendur yfir á fiskiskipaflota Vísis hf. í Grindavík. Nýlega var skrifað undir samning í Póllandi um nýsmíði sem kemur í stað Páls Jónssonar GK og kemur nýja skipið á miðju ári 2019. Þá er unnið að endurbyggingu á gömlu Arney undir vinnuheitinu Sævík og kemur skipið á miðju næsta ári og leysir af hólmi Sighvat GK sem hefur þjónað Vísi frá árinu 1980.

Frá þessu greinir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, á heimasíðu fyrirtækisins.

Þar segir ennfremur að fyrr á árinu hafi fyrirtækið selt eign sína í Kanada og áfram hafi verið unnið með Marel að nýjum tæknilausunum í vinnslunni og kom ný gæðaskoðunarlína í haus sl. haust í stað hefðbundinnar snyrtilínu.

„Í Póllandi er unnið að endurbyggingu á gömlu Arney ex Skarðsvík. Ekkert er skilið eftir af gamla skipinu nema 2/3 af stálinu og er því nánast hægt að tala um nýsmíði. Mun það skip – sem gengið hefur undir vinnuheitinu Sævík - koma til landsins á miðju ári 2018  og leysa af hólmi Sighvat GK sem þjónað hefur okkur frá árinu 1980.  Í vikunni var svo skrifað undir samning um nýsmíði í stað Páls Jónssonar GK sem koma mun til okkar á miðju ári 2019. Jafnframt er í þeim samningi ákvæði um annað samskonar skip sem kæmi til landsins ári síðar ef við kjósum svo. Það skip myndi leysa Kristínu GK af hólmi.  Það eina sem þá væri eftir við endurnýjun flotans væri að Jóhanna færi í allsherjar klössun sem lyki á árinu 2021 en eins og menn muna kom Fjölnir GK endurbyggður til landsins fyrir rúmu ári. Gamli Fjölnir – eða Hrungnir eins og hann hét lengst af – fékk virðulega útför í Njarðvíkurslipp á miðju þessu ári eftir áratuga þjónustu og félagsskap við okkur.“

Á sama degi og skrifað var undir nýsmíðina, 12. desember sl., var einnig skrifað undir samruna Vísis og Marvers ehf. sem gerir út Daðey GK. Með henni fylgja 1.100 tonna veiðiheimildir.

„Við munum áfram treysta á íslenskt hugvit og þekkingu í uppbyggingu okkar, eins og við höfum gert með Marel, NAVIS og Raftíðni í ofangreindum fjárfestingum.“