Endurbyggð Torfunefsbryggja við Pollinn á Akureyri var í dag vígð við hátíðalega athöfn. Togari Samherja, Björg EA 7, lagðist að bryggjunni og vígði þar með hið nýja mannvirki. Sagt er frá þessu á heimasíðu Samherja.

Fánum prýdd lagðist Björg EA að bryggjunni klukkan 10:00 og tóku fulltrúar Hafnarsamlags Norðurlands og Samherja á móti landfestum, þau Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja. Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja leysti landfestar skipsins.

Stór dagur

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri flutti ræðu, þar sem hún rakti tilurð endurgerðar Torfunefsbryggju.

„Þetta er stór dagur fyrir okkur Akureyringa. Þetta er stór áfangi fyrir okkur að fá ‏þetta svæði sem verður vonandi eins og Aker brygge í Ósló, iðandi af mannlífi og skemmtilegheitum. Svæðið verður góð viðbót við miðbæinn okkar. Mér finnst afskaplega viðeigandi að þetta glæsilega skip hafi verið fyrst til að leggjast að endurgerðri Torfunefsbryggju. Til hamingju Akureyringar.“

Pétur Ólafsson hafnarstjóri.
Pétur Ólafsson hafnarstjóri.

Vígslan lengi í minnum höfð

Guðmundur Freyr Guðmundsson er skipstjóri á Björgu EA. Hann segir heiður að Björg EA hafi verið fyrsta skipið til að leggjast að endurgerðri Torfunefsbryggju.

Björg EA við það að leggjast að bryggju fyrr í dag.
Björg EA við það að leggjast að bryggju fyrr í dag.

„Akureyri er útgerðarbær og því viðeigandi að akureyskt skip vígi þetta mannvirki. Björg EA er glæsilegt vel búið skip og áhöfnin sem var með mér í þessu verkefni gerði það með ánægju og stolti. Ég óska Akureyringum til hamingju með endurgerða Torfunefsbryggju og það verður spennandi að fylgjast með frekari framkvæmdum hérna á svæðinu. Þetta er ánægjulegur dagur, sem eflaust verður lengi í minnum hafður. Ég þakka Hafnarsamlagi Norðurlands fyrir að bjóða okkur að vígja bryggjuna.“