Ísfisktogarinn Björgvin EA 311 lagði af stað frá Dalvík til Vigo á Spáni um miðjan dag í gær og kvöddu margir bæjarbúar þetta fengsæla skip og fylgdust með þegar landfestum var sleppt í síðasta sinn í heimahöfn Björgvins EA.

Björgvin EA siglir út Eyjafjörðinn líklega í síðasta sinn. MYND/ÞORGEIR
Björgvin EA siglir út Eyjafjörðinn líklega í síðasta sinn. MYND/ÞORGEIR

Nokkrir í áhöfn Björgvins EA taka þátt í siglingunni til Vigo, ásamt tveimur Spánverjum. Skipstjóri á siglingunni er Björn Már Björnsson og fyrsti stýrimaður er Brynjólfur Oddsson.

Félagarnir Leifur Björnsson og Hartmann Kristjánsson sáu um að sleppa, en þeir voru báðir í áhöfn Björgvins EA í liðlega tuttugu ár.

Björgvin EA var elsta skipið í flota Samherja, smíðað í Noregi árið 1988 og hefur alla tíð reynst mjög vel. Áhöfnin hefur umgengist skipið á sérstaklega vandaðan hátt og alla tíð hefur viðhald verið með ágætum.