Samherji hagnaðist um rúma ellefu milljarða króna á síðasta ári. Þetta er helmingi minni hagnaður en ári fyrr þegar fyrirtækið hagnaðist um 22 milljarða króna, en það var jafnframt besta afkoma félagsins í sögunni.
Fram kemur á vefsíðu Samherja að rekstrartekjur fyrirtækisins og dótturfélaga hafi verið rúmir 78 milljarðar króna árið 2014. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 16,4 milljörðum króna, samanborið við 25,4 milljarða árið á undan en það ár nam söluhagnaður 8,1 milljarði. Afkoma af reglulegri starfsemi í fyrra var því mjög svipuð og árið á undan. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 13,7 milljörðum og að teknu tilliti til tekjuskatts var hagnaður ársins 11,2 milljarðar króna.
Sjá nánar á vef Viðskiptablaðsins .