Sjávarklasinn hefur útnefnt ellefu ný tæknifyrirtæki og sprota sem vert verði að fylgjast með á komandi misserum.

Að því er segir á vef Sjávarklasans eiga þessi fyrirtæki sammerkt að kynna nýjungar sem eiga erindi á stærri markaði. Sum þeirra hafi þegar náð fótfestu á erlendum mörkuðum og vakið athygli utan Íslands.  „Þessi listi er alls ekki tæmandi og marga aðra sprota mætti nefna sem við munum fylgjast með á komandi árum,“ er tekið fram.

Orkusparnaður og öryggi í brennidepli

Ekkert eitt er sagt einkenna þessi ellefu fyrirtæki. „Þó má benda á að röskur helmingur fyrirtækjanna hefur þróað tækni sem sparar orku og þá eru öryggi sjófarenda einnig verkefni nokkurra þeirra. Nýting gervigreindar er einnig stór þáttur í nýsköpun margra þessara fyrirtækja.“

Fyrirtækin á listanum eru Alda, Ankeri, Greenfish, Hefring Marine, Learn Cove, Marea, Oceans of data, Optitog, Sea Growth, Sidewind og Visk.

Snúið kynningarstarf erlendis

„Flest fyrirtækjanna hafa þróað hugbúnað eða tækni sem ekki er til staðar á markaðnum eða kemur sem umtalsverð viðbót við þá tækni eða þjónustu, sem er til á markaðnum. Þessar nýjungar skapa þannig mikil tækifæri fyrir þessi fyrirtæki en um leið er oft snúið að kynna útgerðum annarra landa nýjungar, ólíkt þeim íslensku. Nokkur fyrirtækjanna eru þó að horfa til fleiri markhópa eins og flutningaskipa og strandgæslu,“ segir á vef Sjávarklasans.

Áfram segir að oft ríki mikil íhaldssemi í rekstri margra útgerða utan Íslands og viðkvæðið því oft þegar ný tækni sé kynnt að tæknin sem til staðar sé núna sé nógu góð. „Ný tækni fyrirtækjanna er því, þrátt fyrir að sýna umtalsverðan ábata fyrir kaupendur, töluverð áskorun í sölu- og markaðsmálum,“ segir í færslunni.

Öflugt samstarf styrkleiki á Íslandi

„Einn helsti styrkleiki íslenska nýsköpunar-umhverfisins er öflugt samstarf  íslenskra fyrirtækja og nýsköpunar-fyrirtækja. Samstarf þeirra fyrirtækja, sem hér eru nefnd, hafa átt gott samstarf við fyrirtæki í útgerð, flutningum og þörungaframleiðslu. Mörg fyrirtækjanna hafa notið aðstoðar útgerða sem hefur gert þeim kleift að prófa nýja tækni um borð í skipum eða í vinnsluhúsum. Þessi sterku tengsl eru ekki áberandi í öðrum löndum og mikilvægt er að halda í þessa góðu samstarfshefð,“ segir einnig.

Konur sækja í sig veðrið

Sérstaklega er bent á að konur séu stofnendur eða meðstofnendur í sex áður nefndra ellefu fyrirtækja. Það sé nokkur breyting frá því þegar Sjávarklasinn tók saman fyrst upplýsingar helstu tæknifyrirtæki í klasanum árið 2012.

„Þá voru lang flest tæknifyrirtæki í klasanum stofnuð án þátttöku kvenna. Fyrir röskum tíu árum, þegar klasinn tók fyrst saman upplýsingar um nýsköpunarfyrirtæki voru karlar stofnendur nær allra tæknifyrirtækja sem sinntu hafsækinni starfsemi en konur stofnendur nær allra heilsu- og bætiefnafyrirtækja sem nýttu afurðir úr hafinu.“

Kynna sig fjárfestum í október

Hluti þessara nýsköpunarfyrirtækja kynnir fyrir fjárfestum á fjárfestadegi Sjávarklasans 11. október næstkomandi. „Þar gefst fjárfestum tækifæri til að kynnast nánar tæknifyrirtækjum, eins og þeim sem hér eru nefnd, en einnig fyrirtækjum sem eru að hasla sér völl á heilsumörkuðum með meðal annars ýmsar afurðir úr hafinu svo eitthvað sé nefnt.“

Tengla á vefsíður fyrirtækisins er að finna í færslunni á vef Sjávarklasans.