Kl.08:05 í morgun sendi strandveiðibátur út neyðarkall á rás 16 vegna þess að eldur hafði kviknað í stýrishúsi bátsins þar sem hann var staddur á miðjum Breiðafirði.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar heyrði neyðarkallið og áframsendi það með því að upplýsa skip og báta á svæðinu um stöðu mála. Fljótlega komu nokkrir bátar til aðstoðar og náðist að slökkva eldinn á stuttum tíma.
Engir bátsverjar hlutu meiðsli. Þar sem báturinn var vélarvana í framhaldinu var áhöfn björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björg á Rifi, kölluð út og lagði af stað til aðstoðar bátnum upp úr kl. 0900. Gott veður er á svæðinu, að því er segir á vef Gæslunnar.