Ekkert lát virðist ætla að verða kolmunnaveiði í færeysku lögsögunni. Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði hafa meira en nóg hráefni, að því er fyrirtækið greindi frá á vef sínum. Um helgina lönduðu Beitir NK og Hákon EA fullfermi á Seyðisfirði og Vilhelm Þorsteinsson í Neskaupstað. Barði NK kom með fullfermi til Neskaupstaðar á mánudag og á þriðjudag komu Börkur NK og Margrét EA með fullfermi, Börkur landaði á Seyðisfirði og Margrét í Neskaupstað.

„Aflinn fékkst í sex holum og var stutt dregið eða allt niður í tvo tíma. Minnsta holið gaf 200 tonn en hið stærsta 480 tonn,“ er haft Runólfi Runólfssyni, skipstjóra á Barða.

„Veitt var vestan við Færeyjar í Ræsinu svonefnda en það er norðan við Færeyjabanka. Þarna er talsvert af fiski á ferðinni og hann virðist vera á stóru svæði, en samt finnst mér ég stundum hafa séð meira. Það er mikill straumur á þessum slóðum og öflugustu skipin ráða best við aðstæðurnar og fiska mest. Kolmunninn er kominn óvenju norðarlega miðað við árstíma og hann fer vestan við eyjarnar sem er gott. Hann ætti að vera kominn í íslenska lögsögu í maí og þá verður án efa hörkuveiði í Rósagarðinum. Hann virðist vera að flýta sér heim blessaður,“ segir Runólfur.