Nú um áramótin var þeim merka áfanga náð í annað sinn í sögunni að ekkert banaslys varð meðal íslenskra sjómanna á undangengnu ári. Síðast gerðist það árið 2008.
Ljóst er að öryggi íslenskra sjómanna hefur aukist til mikilla muna sem og öryggisvitund þeirra, sem hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu áratugum. Má með sanni segja að starf Slysavarnaskóla sjómanna í fræðslu til sjómanna um öryggismál hafi þar enn og aftur sannað mikilvægi sitt, segir á vef Landsbjargar.
Öllum sjómönnum er skylt að sækja öryggisfræðslu eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og er árangurinn vel sýnilegur á þessum tímamótum. Á árinu 2011 varð metþátttaka í námskeiðum við Slysavarnaskóla sjómanna en þá sóttu 3.112 manns námskeið við skólann en fyrra met var 2.300.
Má rekja þessa aukningu til gildistöku öryggisfræðsluskyldu til handa sjómönnum á smábátum.