Sjómönnum á uppsjávarskipum samstæðu Vinnslustöðvarinnar var í gær tilkynnt um breytingar á skipastól útgerðarinnar. Þetta kemur fram í færslu á vef fyrirtækisins.

„Félagið gerir nú út þrjú skip til uppsjávarveiða. Huginn VE, Sighvat Bjarnason VE og Gullberg VE. Í kjölfar minnkandi aflaheimilda í makríl, síld og loðnu, sem nema 45 þúsund tonnum, er ekki þörf á að gera öll þrjú skipin út á ársgrundvelli,“ segir í færslunni.

„Huginn og Gullberg verða gerð út sem aðal skip félagsins og verða gerð út á makríl, síld, kolmunna og loðnu en Sighvatur Bjarnason verður gerður út á loðnu- og makrílvertíðum þegar þess þarf. Með breytingunum verður komið á skiptikerfi sjómanna til að tryggja að sem flestir haldi starfi sínu,“ segir áfram.

Þá kemur fram að bjóða eigi flestum fastráðnum skipverjum áframhaldandi starf í nýju ráðningarfyrirkomulagi á uppsjávarskipum útgerðarinnar. „Þar sem því verður við komið verður sjómönnum sem ekki fá pláss á uppsjávarskipum boðið starf á öðrum skipum eða í landdeildum Vinnslustöðvarinnar.“