Makrílbáturinn Blíða KE hefur gert það gott á handfæraveiðum undanfarnar vikur. Fáeinir smábátar hafa stundað þessar veiðar síðustu tvö til þrjú árin en Blíða KE er aflamarksbátur og veiðir með átta handfærarúllum.
Búnaðurinn er ansi tilkomumikill að sjá og hafa menn gjarnan á orði að báturinn líti út eins og skreytt jólatré. Rúllurnar, sem stýra taumunum, bera hátt við himin og hvíla á rennum sem standa út frá skipinu. Fljótt á litið virðist hér um mikið kraðak að ræða en öllu er þó haganlega fyrirkomið.
Fiskifréttir brugðu sér í róður með Blíðu KE um síðustu helgi. Á myndinni hér til hliðar er Sigurpáll Hjörvar Árnason vélstjóri að ganga úr skugga um að allt sé í lagi þegar veiðar voru að hefjast á Búðargrunni í Faxaflóa.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag.