Ísfisktogarinn Gullver NS landaði fullfermi eða 108 tonnum á Seyðisfirði á þriðjudagsmorgun. Uppistaða aflans var þorskur og ýsa en einnig var nokkuð af ufsa og gullkarfa.
Frá aflabrögðum segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Þar segir að frystihús Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði tók drjúgan hluta aflans til vinnslu en hluti hans fór til vinnslu á Akureyri og í Neskaupstað.
Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að nú á tímum kórónaveirunnar fari Gullver í eina veiðiferð á viku og í þessari veiðiferð hafi verið farið suður fyrir land.
„Við byrjuðum í Breiðamerkurdýpi og á Öræfagrunni og tókum þar þrjú hol. Síðan var keyrt á Selvogsbankann og þar fengust 85-90 tonn á einum og hálfum sólarhring. Þá var komið hrygningarstopp og Selvogsbankanum lokað. Það verður að segjast að þetta var fínasti túr“, segir Þórhallur.
Gullver NS hélt á ný til veiða í gærkvöldi.