Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í fyrrinótt að lokinni vel heppnaðri veiðiferð. Afli skipsins var 115 tonn, nær eingöngu þorskur og ýsa. Landað var úr skipinu í gær og mun það halda til veiða á ný á morgun.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Þórhall Jónsson skipstjóra og spurði hvar veitt hefði verið.

„Við vorum á Glettinganesflakinu nánast allan tímann. Það var fínasta veður þar allan túrinn en sunnar var hins vegar leiðindaveður. Til stóð að leita að karfa og ufsa úti fyrir suðausturlandinu en veðrið kom í veg fyrir það. Það gekk vel að veiða í túrnum. Þorskurinn sem fékkst var einkar stór og fallegur og ýsan var reyndar líka fín. Það hafa verið góð aflabrögð hjá Gullver að undanförnu en veitt hefur verið út af Austfjörðum og suðausturlandinu. Það er ávallt ánægjulegt að koma með góðan afla eða fullt skip að landi að veiðiferð lokinni,” segir Þórhallur.