Nú liggur skipið Green Guatemala í höfninni í Neskaupstað og lestar frysta loðnu sem fer til Svartahafsins.  Um er að ræða eina stærstu útskipun ársins en skipið mun taka 5.000 tonn. Að sögn Heimis Ásgeirssonar yfirverkstjóra gengur lestun vel og fara um 1.000 tonn um borð í skipið á dag, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Í stað loðnunnar sem fer úr frystigeymslum Síldarvinnslunnar kemur frystur kolmunni. Vilhelm Þorsteinsson EA er væntanlegur seinni partinn á morgun með tæplega 600 tonn af frystum kolmunna og á fimmtudag er Hákon EA væntanlegur með um 750 tonn.