Meðal efnis í páskablaði Fiskifrétta er eftirfarandi:
Líkanið finnur fiskinn. – Dr. Guðrún Marteinsdóttir segir frá nýjum rannsóknum sem m.a. gætu nýst skipstjórum við fiskileit.
Áhugamönnum hyglað á kostnað atvinnusjómanna. – Kristinn Gestsson skipstjóri á Þerney RE segir frá sjómennskuferli sínum og gagnrýnir breytingar á stjórn fiskveiða.
Vanmetnasta björgunarafrek síðustu ára. – Snorri Sturluson RE bjargaði Örfirisey RE sem rak stjórnlaust upp að Grænuhlíð árið 2002.
Skírði bátinn eftir teiknimyndapersónu. – Jóhannes Þór Sigurðsson stýrimaður á Kristbjörgu VE er sinn eigin herra á sumrin.
Netin bunkuð af rígaþorski við Vestrahraunið. – Fiskifréttir í róðri með Erling KE á dögunum.
Kominn á kaf á ný í útgerð og fiskvinnslu. – Hinrik Kristjánsson rekur nú fiskvinnsluna Kamb í Hafnarfirði.
Eru sóknarfæri í fullvinnslu? – Rætt við Kristján Hjaltason ráðgjafa um fullvinnslu og markaðssetningu sjávarafurða.
Síðutogaratíminn í myndum. – Hafliði Óskarsson á Húsavík heldur úti vefsíðu með myndum af síðutogurum og fróðleik um þá.
Auk þess fastir liðir, fréttir og fleira.