Arctic Fish hefur ráðið Daníel Jakobsson sem forstjóra frá og með 1. maí 2025. Daníel tekur við af Stein Ove Tveiten, sem verður áfram til ráðgjafar hjá fyrirtækinu til 1. júní næstkomandi, að því er segir í fréttatilkynningu.

Daníel hefur gegnt stjórnunarstöðu hjá Arctic Fish frá árinu 2021 og veitt viðskiptaþróun fyrirtækisins forstöðu.

„Leiðtogahæfileikar hans, sérfræðiþekking og djúpar rætur í samfélaginu á Vestfjörðum gera hann vel til þess fallinn að leiða fyrirtækið í því vaxtarskeiði sem framundan er hjá Arctic Fish,“ segir í tilkynningunni.

„Við erum mjög ánægð með ráðningu Daníels. Laxeldi á Íslandi er enn ung atvinnugrein og lykillinn að áframhaldandi árangri veltur á framúrskarandi starfsemi sem byggir á öflugri dýravelferð, ábyrgri umhverfisstefnu og traustum fjárhag ásamt öryggi og velferð starfsfólks. Daníel hefur víðtæka þekkingu á allri starfsemi fyrirtækisins og verður með starfsstöð á Ísafirði,“ segir Øyvind Oaland, stjórnarformaður Arctic Fish.

Stjórn Arctic Fish segir ákvörðunina að ráða úr röðum starfsmanna fyrirtækisins varpa ljósi á það markmið að starfsþróun sé grunnurinn að vexti fyrirtækisins til framtíðar.

Arctic Fish er laxeldisfyrirtæki á Vestfjörðum. Félagið hefur 29.800 tonna leyfi til framleiðslu á 10 eldisstaðsetningum í fimm fjörðum, þ.e. Patreksfirði, Tálknafirði, Arnarfirði, Dýrafirði og Ísafjarðardjúpi. Seiðaeldi félagsins er í Tálknafirði, fóðurmiðstöð á Þingeyri, skrifstofur á Ísafirði og hátæknilaxavinnsla í Bolungarvík.