„Það er einhver veiði búin að vera og hún byrjar að minnsta kosti betur heldur en síðustu ár,“ segir Þórhallur Hjaltason, stýrimaður á Aðalsteini Jónssyni SU 11 um makrílveiðina sem nú er hafin í Smugunni.

Þórhallur segir makrílveiðina nú vera jafnari heldur en við upphaf veiða undanfarin ár. „Þetta lítur bara þokkalega út á köflum,“ segir hann.

Áhöfnin á Aðalsteini hóf veiðarnar í Smugunni síðastliðinn föstudag og hefur verið ágætis veður þótt aðeins hafi gjólað síðustu daga.

„Við erum í samveiði og erum búnir að setja Guðrúnu Þorkelsdóttur í land með 800 tonn. Við erum komnir með um 700 tonn,“ segir Þórhallur þegar rætt er við hann fyrir hádegi á þriðjudegi en þá er rólegt yfir veiðinni.

Getur horfið hratt

„Þetta er stór og fallegur fiskur, 480 til 490 grömm. Þetta lítur vel út eins og er en maður veit aldrei hvernig morgundagurinn verður í þessum makrílveiðum,“ segir Þórhallur sem kveður makrílinn á mikilli ferð. „Þetta getur horfið jafn hratt og þetta birtist.“

Íslenski uppsjávarflotinn er að sögn Þórhalls eiginlega allur í Smugunni og er þar ekki einn. „Það er einn Færeyingur hérna og svo er fullt af Rússum hérna norðan til,“ segir Þórhallur. Rússnesku togararnir hafi verið mættir áður en Íslendingarnir komu á miðin.

Framhaldið segir Þórhallur einfaldlega vera að halda áfram veiðum. „Það er bara að reyna að klára þetta sem fyrst,“ segir hann. Ómögulegt sé að segja til um hversu langan tíma það taki.

Makrílinn segir Þórhallur verða frystan heilan og hausaðan og síðan seldan út til Austur-Evrópu.