Hin nýja Vestmannaey VE 54 hélt norður til Akureyrar hinn 6. ágúst síðastliðinn og munu þar starfsmenn Slippsins Akureyri ganga frá millidekki skipsins. Áður höfðu starfsmenn Vélsmiðjunnar Þórs í Vestmannaeyjum gengið frá lestarfæribandi um borð.
Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Þar segir að millidekkið verður um þriðjungi stærra, og að ýmsu leyti fullkomnara en var í gömlu Vestmannaey (núverandi Smáey). Þar verða meðal annars tveir stærðarflokkarar og krapakerfi frá KAPP.
Þá er lögð áhersla á að vinnuaðstaða á dekkinu verði öll hin besta og líkamlegt álag á áhöfnina í lágmarki.
Gert er ráð fyrir að hin nýja Vestmannaey geti hafið veiðar um miðjan september.
Fleiri myndir og upplýsingar má finna á síðu Þorgeirs Baldurssonar, ljósmyndara.