Framkvæmdum við byggingu nýrrar frystigeymslu HB Granda á Norðurgarði í Reykjavík miðar vel. Að sögn Torfa Þ. Þorsteinssonar, framleiðslustjóra félagsins, eru þær á áætlun og er gert ráð fyrir að taka frystigeymsluna formlega í notkun á sjómannadaginn, að því er fram kemur á vef HB Granda.

Það eru ÍAV og Kælismiðjan Frost sem eru verktakar vegna nýbyggingarinnar og samkvæmt upplýsingum frá þeim félögum vinna nú um 40 manns að byggingarframkvæmdunum. Húsið, sem er um 3.800 m2 að heildarflatarmáli, er nú meira en fokhelt. Þessa dagana er m.a. unnið að koma fyrir stálvirki fyrir milligólf, ytri klæðningu á frysti- og flokkunarrými og uppsetningu frystieininga.

Hin nýja frystigeymsla HB Granda á Norðurgarði verður áberandi mannvirki, vestan við innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn, gegnt Hörpu, og því ákváðu stjórnendur félagsins að efna til samkeppni sl. haust meðal listamanna um umhverfislistaverk á eða í tengslum við bygginguna. Alls bárust alls 39 tillögur. Var það einróma niðurstaða dómnefndar að fá listamennina Olgu Bergmann, Ólöfu Nordal, Rósu Gísladóttur og Þór Vigfússon til að fullvinna tillögur sínar. Frestur til að skila fullmótuðum hugmyndum rennur út nk. miðvikudag og er stefnt að því að vinningstillagan verði kynnt eigi síðar en 5. maí nk.