Það var aldeilis hamagangur á bryggjunni í Garði í gærkvöldi.  Makríllinn mættur og vel tekið á móti honum.  Fjölmenni á bryggjunni og veiði mjög góð.

Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda . Að sögn aðila á staðnum sem hefur reynslu í bryggjuveiðum á makríl er hann stærri nú en í fyrra. Það kemur heim og saman við fréttir frá uppsjávarskipunum sem nú eru farin að reyna fyrir sér í Grindavíkurdýpi.